Rausarþraus (no content)
Otto Marwin, Oct 03 2011
Svona í tilefni þess að ég sit hér og reyni að læra þá ákvað ég að pókerblogga í staðinn.
Ég reyndi fyrir mér í FLHE og líkaði það vel, finnst líklegt að ég leggi þann leik fyrir mig í Janúar en eins og staðan er í dag er ég að prófa stór MTTs. Ég ákvað fyrir nokkru þegar ég bakkaði útur grinder tilraun á iPoker að ég skildi bara fara á Stars og reyna fullnýta þá bonusa sem sú síða hefur uppá að bjóða. Ég hef sipilað FR og 6-max NLHE með misjöfnum árangri, aðalega í rauðu. Ég hef prófað HU sem gékk hellvíti vel á FT og Stars en þegar ég fór að setja inn eitthvað volume jafnaðist það út og ég er down þar líka. Ég prófaði SNGs og ég er even SNG spilar (6-27manna) Ég tók FLHE maraþon í ágúst og tók eftir hversu sick rake-ið er á 1/2 bitum, FPP og VPP hlaðast inn á ljóshraða. Leikirnir eru hægir og þess vegna hægt að spila fleiri borð án þess að það komi eitthvað sérstaklega niður á winrate, og með VPP grind er að mínu mati mikið value í á PokerStars.
En eins og ég sagði, þá er ég að prófa stór MTTs núna og ætli það sé ekki bara svona til að gíra sig upp fyrir Íslandsmót í Nóv. Ég er ekki að setja inn mikið volume, enda mikið að gera bæði í vinnu og skóla eins og er, en ég spila þegar ég hef tíma. Ég held að ég taki því rólega online þanga til í enda nóv/miðjan des, svo pókerinn sé ekki fyrir prófunum.
Ég held ég taki enn eina grindertilraunina í Janúar sem verður FLHE með smá MTT mixað inní.
En núna get ég bara hugsað um hversu mikið mig hlakkar til í Nóv...ég er að fara á airwaves núna eftir nokkra daga en mér einhvernvegin gæti...hlakka of mikið til að eyða helgi á Hótel Örk og spila af mér rassgatið. Ég vona að ég sjái sem flesta 52.is notendur þarna, alltaf gaman að geta sett andlit við notendanöfnin hérna.
Jæja, ætli ég þurfi eitthvað að hafa þetta lengra, afsaka innihaldsleysi, en eins og titillinn segir, þetta er rausarþraus.
Keflavík
Otto Marwin, Jun 06 2011
Einhverjir lurkarar hér á 52 sem stunda spil á ásnum hjá honum Jóni 'SebTores' og félögum? Ef svo er, þá er ég á leiðinni þangað á morgun í cg, hef alveg far báðar leiðir ef einhver er á Rekjavíkursvæðinu og vill kíkja með, ég verð tölvulaus á morgun svo getið droppað á mig línu í síma 8483565 og tjekkað á mér.
ooog ef þið búið í keflavík, komið og gefið mér peninginn ykkar á morgun.
PC1.0 - Janúar
Otto Marwin, Jan 31 2011
Já, verkefnið er byrjað...ekki byrjar það með neinum látum.
Ég gat ekki byrjað að spila fyrr en 23. janúar og prófatörnin sem er hafin núna endar ekki fyrr en eftir fyrstu viku í febrúar, svo ég hafði ekki mikinn tíma, sérstaklega þar sem ég vill ekki hefja session ef ég get ekki setið í a.m.k 2 tíma til þess að spila, sem gerir það að verkum að ég fer ekki að leita mér af skyndikinnum, ég vill alltaf hafa þetta fullt stefnumót.
Fyrstu 1k hendurnar tóku lengri tíma en ég bjóst við, en ég er heila tvo tíma að slefa uppí þúsundarþröskuldinn, eitthvað sem ég bjóst ekki við, ég er á skrefi 1, nl10 - 8 borð - náði að halda mér sléttum..endaði 3bi niður en rb setur mig í 2bi plús.
Ég tilkynni ykkur hér með að ég ætla svindla mig yfir nl10 skrefið og fara í nl20, ég vill ekki eyða meiri tíma þarna niðri þar sem það er bara tiltandi, ég er að spila í pundum og þess vegna þurfti ég að byrja svona lágt, en $600 eru ekki nema 375 GBP.
+ Sýna spoiler +
Í febrúar er markmiðið sett á 50k hendur í nl20 - bankrollið stendur í ~395GPB, ég bæti 150GPB á það og þá er ég búntaður fyrir skref 2.
Næsta síða |